SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Þóra Jónsdóttir

Þóra Aðalbjörg Jónsdóttir fæddist þann 23. ágúst árið 1895 og kenndi sig við og bjó í Kirkjubæ í Norðurárdal í Húnavatnssýslu. Móðir hennar var Halldóra Einarsdóttir Andréssonar frá Bólu og faðir Jón Jónsson frá Syðri-Grund í Skagafirði. Voru hjónin bæði vel skáldmælt enda liggja ættir þeirra beggja í skáldalegg Skagfirðinga.
 
Þóra lauk námi við kvennaskólann á Blöndósi og vann við kennslustörf í heimahéraði. Þá var hún við handavinnunám í Kaupmannahöfn um nokkurt skeið.
 
Þóra giftist Jóhanni Fr. Guðmundssyni kaupmanni á Siglufirði. Þóra og Jóhann eignuðust þrjú börn, þau Álfhildi Helenu (dó ung) og Brynhildi Hjördísi, tvíburadætur, og Álfþór Brynjarr. Brynhildur giftist Alberti Guðmundssyni stórkaupmanni og borgarfulltrúa í Reykjavík.
 
Þau hjónin létust bæði í bílslysi í Reykjavík árið 1966.
 
Það var eins með hana og margar skáldkonur nítjándualdarinnar að lítil tími var til að stunda þá iðju en ung vakti hún athygli fyrir bragarleikni eins og stendur í formála ljóðabókar sem afkomendur tóku saman og gáfu út árið 1972.

Ritaskrá

1972 Ljóð Þóru frá Kirkjubæ