SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Þórhalla Svanholt Björgvinsdóttir

Þórhalla Svanholt Björgvinsdóttir fæddist í Krossavík í Þistilfirði þann 23. janúar 1916.  Hún var gift Sveini Kristni Nikulássyni og áttu þau 5 syni. 

Þórhalla var skáldmælt og orti ljóð og kvæði að hætti 19. aldar kvenna í bundnu formi.  Hún gaf út ljóðabókina ,,Viltu vaka" ári áður en hún lést. Ljóðin eru bæði vel gerð og vel ort.


Ritaskrá

1995 Viltu vaka