SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Sigríður Pétursdóttir

Sigríður Pétursdóttir fæddist á Húsavík og útskrifaðist frá MA árið 1981. Hún lauk námi frá textíldeild Kennaraháskóla Íslands árið 1985 og vann eftir það samhliða við kennslu og útvarpsþáttagerð. Árið 1996 hélt hún til Svíþjóðar til að læra kvikmyndafræði og frásagnartækni og útskrifaðist frá Högskolan i Sverige árið 2000.

Sigríður hefur áratuga reynslu að baki sem dagskrárgerðarkona og gagnrýnandi og vann lengst af fyrir RÚV. Þar hafði hún umsjón með þáttum á Rás 1, svo sem Kviku, Bíótónum og Paradísarbíóinu, og var einn umsjónarmanna menningarþáttanna Mósaík og Djöflaeyjunnar í Sjónvarpinu. Hún bjó í London frá 2012-2019 og fjallaði um menningaratburði þar fyrir RÚV, m.a. fyrir Lestina, Kastljós og Menninguna. Sigríður hefur ennfremur flutt fjölda fyrirlestra um kvikmyndir, setið í dómnefndum, skrifað fyrir blöð og tímarit og var varaformaður Kvikmyndaráðs 2009-2011.

Árið 2010 kom út hjá Uppheimum smásagnasafnið Geislaþræðir eftir Sigríði og fyrir sína fyrstu skáldsögu, Hefnd Diddu Morthens, hlaut hún verðlaun í handritasamkeppni Forlagsins sem nefnist Nýjar raddir. 

 

Mynd: Sunna Ben, DV


Ritaskrá

  • 2025  Hefnd Diddu Morthens
  • 2010  Smásagnasafnið Geislaþræðir 
  • 1999  Heimur kvikmyndanna, kafli um kvikmyndir þjóðlanda, Svíþjóð

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2025  Nýjar raddir: Handritasamkeppni Forlagsins fyrir Hefnd Diddu Morthens

 

Tengt efni