SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Áslaug S. Jensdóttir

Áslaug Sólbjört Jensdóttir fæddist á Læk í Dýrafirði 23. ágúst 1918.
Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 12. júní 2015.

Foreldrar hennar voru Ásta Sóllilja Kristjánsd., f. 6.1. 1892, d. 28.1. 1936, frá Breiðadal í Önundarf. og Jens Guðmundur Jónss., f. 6.9. 1890 d. 15.12. 1976 frá Fjallaskaga, Dýraf. Systk. Áslaugar: Jón Óskar, Jenna tvíburasystir, Sigríður, Hilmar, Kristján Svavar, Soffía Gróa og Gunnbjörn.

Áslaug giftist 15.5. 1941 Valdimari Kristinssyni, skipstjóra og bónda, f. 4.1. 1904 að Núpi, Dýraf., d. 1.9. 2003. Þau áttu 9 börn. 
Áslaug ólst upp í Litla-Garði, Dýraf. Sautján ára gömul tók hún við búsforráðum með föður sínum, en móðir hennar lést fyrir aldur fram. Árið 1941 lauk hún námi við Húsmæðraskólanum Ósk, Ísaf. Sama ár giftist hún Valdimari og fluttist að Núpi. Heimili þeirra var mannmargt og mikið um gestakomur og fundahöld er þau hjónin sinntu ábyrgðarstörfum fyrir samfélagið. Áslaug sá um landsímastöð fyrir Núpsskóla. Hún var víðlesin, fylgdist með þjóðmálum af þekkingu, var mikil ræðumanneskja og tók þátt í stjórnmálum og félagsmálum. Hún var formaður Kvenfélags Mýrarhrepps yfir 30 ár, sat í stj. Samb. vestf. kvenna og var í sóknarnefnd Núpskirkju. Hún gaf út ljóða- og smásagnab. Hvíslandi þytur í blænum, árið 2000. Hún ræktaði og nýtti jurtir til matargerðar.

Um hana segir í minningargrein í Mbl: Ása hafði ákveðnar skoðanir og varði þær gjarnan af mikilli rökvísi hvort sem þær vörðuðu
málefni sveitarfélagsins, landsins eða heimsmálin. Hún fylgdi sinni sannfæringu en var jafnframt reiðubúin að skipta um skoðun væru henni færð gild rök. Ása sinnti mjöltum kvölds og morgna alla sína búskapartíð og eins var hún með símstöðina á staðnum - árum saman. Hún var mikil félagsmálamanneskja, flugmælsk, hagyrðingur góður, flink hannyrðakona og mikill jafnréttissinni.

Um hana segir einnig að ekki væri hún aðeins bráðfalleg, harðdugleg og stórgáfuð, heldur einnig svo orðhög að móðgun væri að
kalla hana hagyrðing. 

Heimildir: Þingeyrarfréttir, Mbl.

 


Ritaskrá

2000 Hvíslandi Þytur í blænum - Ljóða og smásagnasafn

Tengt efni