SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Lilja Ósk Snorradóttir

Lilja Ósk Snorradóttir er kvikmyndaframleiðandi og meðeigandi kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins Pegasus. Árið 2025 sendi hún frá sér fyrstu bók sína, Heimsins besti dagur í helvíti, persónulega frásögn um bataferli eftir alvarlegt höfuðhögg. Nú hefur hún sent frá sér bókina Aumingi, mella, syndari, heilagur andi og er hún hennar fyrsta skáldsaga.

Lilja hefur starfað við kvikmyndagerð í tæpa þrjá áratugi og hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra fyrirtækisins frá árinu 2010. Á ferli sínum hefur hún unnið að þróun og framleiðslu fjölbreyttra kvikmynda og sjónvarpsverka sem hafa notið viðurkenningar bæði hér heima sem og erlendis.

Meðal þeirra eru Þrestir, Arctic og Bergmál, auk fjölda annarra verka sem sýnd hafa verið á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum og hlotið verðlaun. Hún hefur einnig komið að framleiðslu sjónvarpsþátta fyrir íslenskan og erlendan markað og stýrt umfangsmiklum þjónustuverkefnum hér á landi fyrir alþjóðlegar þáttaraðir á borð við Game of Thrones, Succession og Fortitude. Samhliða störfum sínum hefur Lilja látið sig þróun íslenskrar kvikmyndagerðar varða og var kjörin formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda árið 2020, fyrst kvenna frá því samtökin tóku á sig núverandi mynd árið 2000.

Hún hefur jafnframt verið valin fulltrúi Íslands í Producers on the Move á vegum European Film Promotion á kvikmyndahátíðinni í Cannes.


Ritaskrá

2026 Aumingi, mella, syndari, heilagur andi

2025 Heimsins besti dagur í helvíti