SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ingibjörg Birgisdóttir

Ingibjörg Birgisdóttir, grunnskóla- og tónlistarkennari, er fædd á Selfossi 10. apríl 1975. Hún ólst upp í sveit fyrstu ár ævi sinnar en hefur síðan búið meðal annars á Selfossi, Stokkseyri og í Tékklandi.

Ingibjörg lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 2007 með tónmennt sem kjörsvið. Hún útskrifaðist með framhaldspróf á blokkflautu frá Tónlistarskóla Árnesinga árið 2010 og hóf nám í Suzuki-blokkflautukennslu haustið 2012. Ingibjörg hefur starfað lengst af sem blokkflautukennari við Tónlistarskóla Árnesinga, þar sem hún hóf störf árið 2003.

Ingibjörg er alin upp við söng og ljóðalestur en faðir hennar, Birgir Hartmannsson, er hagyrðingur með mikinn áhuga á íslenskum bragarháttum. Ljóðaáhugi hennar kviknaði þó ekki fyrir alvöru fyrr en í náminu við Kennaraháskóla Íslands. Þar kynntist hún ljóðabókum Þórarins Eldjárns og skráði sig í ljóðaáfanga hjá Ragnari Inga Aðalsteinssyni. Hún heillaðist af forminu og ákvað í framhaldinu að semja ljóðabók fyrir börn.

Fyrsta ljóðabók Ingibjargar, Skýjamyndir, kom út árið 2007 og var lokaverkefni hennar í Kennaraháskólanum. Bókin geymir tíu barnaljóð í bundnu máli sem myndskreytt voru af argentíska teiknaranum Nataliu Yacuzzi. Næsta bók hennar kom út sautján árum síðar og með þriðju bók sinni stofnaði Ingibjörg sjálfsútgáfuna Skjalda bókaútgáfa. Nafnið á rætur að rekja til æsku hennar þegar hún lék sér að því að búa til bulltexta með endarími og kallaði það að „skjalda“.

Ingibjörg býr á Selfossi, er gift Vernharði R. Sigurðssyni og eiga þau fjögur börn.


Ritaskrá

  • 2026 Litaævintýri Siggu og Dóra 
  • 2025 Dásamleg dýr
  • 2024 Draumar
  • 2007 Skýjamyndir