
Freyja “Sparkle” Möller
Freyja “Sparkle” Möller (áður Sindri “Sparkle” Freyr) er fædd 18. febrúar 1997. Hún lauk stúdentsprófi í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Eftir það lauk hún fornámi í myndlist og diplómagráðu í málaralist frá Myndlistaskólanum í Reykjavík og svo BA í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands. Hún skilgreinir sig sem fjöllistakonu og skapar því í fjölmörgum miðlum og á það til að blanda þeim saman.
Listaferill Freyju byrjar í Hinu Húsinu þar sem hún sýndi sjö sýningar á þremur árum í Gallerí Tukt. Þar kynnist hún fyrsta rithóp sínum sem seinna gaf út bókina Sófar árið 2016. Þaðan fer Freyja í gegnum myndistarnám og uppgötvar hæfileika sinn í að segja sögur. Lokaverkefni hennar á málarabraut var kvikmyndin Opening Up sem vann til verðlauna á Reykjavík Fringe Festival.
Skrif hafa alltaf spilað stóran þátt í verkum Freyju hvort sem um er að ræða að skrifa brandara, leikrit eða sögur. Í stað þess að treysta á útgefendur, sem sögulega séð hafa haft lítinn áhuga á hinsegin bókmenntum, fór hún að læra grafíska hönnun til þess að geta sett upp sínar eigin bækur og gefið út í jaðar-listasamfélögum. Þannig stóð hún að fjölmörgum smáritum og ljóðabókum, t.d. Grímunni: Grindr ljóðum sem hlaut frábæra dóma. Fyrsta bók Freyju sem fékk útgefanda er A Pocket Guide to Pride Flags en Microcosm Publishing sá um útgáfu sumarið 2026.
Ritaskrá
- 2026: A Pocket Guide to Pride Flags: An Illustrated History of Queer Community Symbols
2025: Gríman: Grindr ljóð
2025: KVÁR ER ÉG!
2022: 70 skipti sem ég þurfti að vera sæt
2016: Sófar
Leikverk og uppistand: - 2026: Sex ed: Kynfræðslukarnival fyrir fullorðna
2025: Skammarþríhyrningurinn (ásamt fleirum)
2024: Kyn/Líf
2024: What is Kink? Baby Please Hurt Me!
2023: A man named Fear
2022: You’re lucky he was nice
2020: Opening up