SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Marta María Jónsdóttir

Marta María Jónsdóttir er fædd 1974 í Reykjavík.

Marta lauk myndlistarnámi í Myndlista- og handíðaskólanum 1994. Þá er hún með meistarapróf í myndlist frá Goldsmiths, University of London og árið 2024 lauk hún meistaraprófi í ritlist frá Háskóla Íslands.

Marta hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningu í Sverrissal í Hafnarborg. Hún hefur starfað við myndlistarkennslu og starfar sem sérfræðingur í fræðslu og miðlun hjá Listasafni Íslands.

Marta hefur myndlýst þrjár ljóðabækur: To bleed straight eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur, í þýðingu Bernard Scudder (2008), Verði ljós, elskan (2021) eftir Soffíu Bjarnadóttur og Stjörnufjallseyjur (2023) eftir Jakub Stachowiak.

Marta er meðhöfundur þriggja námsbóka í myndlæsi og birtist smásaga eftirhana, Iðar í skinninu, í ritverkinu Hótelsögur (2022). 

Fyrsta skáldsaga Mörtu, Fuglamál, kom út hjá Benedikt 2026.


Ritaskrá

  • 2026  Fuglamál (skáldsaga). 
  • 2026  Stattu og vertu að steini, þjóðsögur í íslenskri myndlist (námsefni), ásamt Ragnheiði Vignisdóttur, Ingibjörgu Hannesdóttur og Dagrúnu Ósk Jónsdóttur. 
  • 2024  Ísabrot, jöklar í íslenskri myndlist (námsefni), ásamt fleirum.
  • 2023  Sjónarafl, þjálfun í myndlæsi (námsefni), ásamt Ragnheiði Vignisdóttur og Hólmari Hólm.  

Tengt efni