Björg Árnadóttir
Björg lauk myndlistarkennaraprófi úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1983, námi í blaðamennsku við Kalix folkhögskola 1989 og MA námi í menntunarfræðum við HÍ 2007. Hún hefur á rúmlega fjörutíu ára starfsævi fengist við ritstörf og ritlistarkennslu, myndlistarkennslu, blaðamennsku, samfélagslistir og rekstur ritlistarskólans Stílvopnins. Björg hefur einnig tekið þátt í 14 alþjóðlegum samvinnuverkefnum um samfélagslistir.
Einnig hefur hún fengist við margvísleg annars konar skrif og má þar einkum nefna útvarpsþáttagerð.
Ritaskrá
2015 Lake Myvatn – people and places.
2011 Af heilum hug.
2007 Forvitni, áræði, skilningur
1994 I Nomos. Einræða
1987 Skiss til en roman. Ljóð
1985 Varför måste jag lära mig teckna?
Verðlaun og viðurkenningar
2024 Hvatningarverðlaunin GlobalWIIN fyrir nýskapandi og valdeflandi kennsluhætti.
2006 Starfsmenntaverðlaunin.
1987 Menningarverðlaun Luleåborgar.
1988 og 1990 Dvalarstyrkur Austur-ungverskra listamannasamtaka
1983 Styrktarsjóður Svövu Finsen við útskrift úr MHÍ
Tilnefningar
1993 Tilnefning til Fjölmiðlaverðlauna Norðurlandaráðs.