SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Bryndís Björgvinsdóttir

Bryndís Björgvinsdóttir er fædd 24. mars árið 1982.

Bryndís útskrifaðist með BA í sagnfræði með þjóðfræði sem aukafag árið 2006 og lauk síðan MA gráðu í þjóðfræði árið 2009.

Bryndís var stundakennari við Háskóla Íslands en starfar nú sem dósent við Listaháskóla Íslands.

Kennsla Bryndísar er á sviði þjóðfræði, menningarfræði, heimspeki og bókmennta, auk þess sem hún kennir fræði- og skáldskaparskrif. Bækur Bryndísar tilheyra einnig flestum þessum sviðum.

Bryndís er margverðlaunuð fyrir bækurnar Fluguna sem stöðvaði stríðið sem kom út árið 2011 og Hafnfirðingabrandarinn sem kom út árið 2014.

Bryndís býr í Reykjavík með manni sínum, Marteini Sindra Jónssyni, og tveimur sonum.

Myndin af Bryndísi er sótt á vefsíðu Listaháskóla Íslands 


Ritaskrá

  • 2021  Kristín Þorkelsdóttir (ásamt Birnu Geirfinnsdóttur)
  • 2018  Gísli B. Björnsson: Merki og form. Ritstjóri.
  • 2018  Krossgötur – álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi (ásamt Svölu Ragnarsdóttur)
  • 2015  Leitin að tilgangi unglingsins: Stefán rís – unglingamálfræðirit (ásamt Arnóri Björnssyni, Óla Gunnari Gunnarssyni og Sóleyju Dúfu Leósdóttur)
  • 2014  Hafnfirðingabrandarinn
  • 2011  Flugan sem stöðvaði stríðið
  • 1997  Orðabelgur Ormars ofurmennis (ásamt Auði Magndísi Leiknisdóttur)

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2015  Fjöruverðlaunin fyrir Hafnfirðingabrandarann
  • 2015  Barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir Hafnfirðingabrandarann
  • 2014  Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Hafnfirðingabrandarann
  • 2014  Verðlaun bóksala fyrir Hafnfirðingabrandarinn
  • 2011  Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Flugan sem stöðvaði stríðið
  • 2011  Verðlaun bóksala fyrir Flugan sem stöðvaði stríðið

 

Tilnefningar

  • 2011  Fjöruverðlaunin fyrir Flugan sem stöðvaði stríðið