![](https://skald.is/rails/active_storage/representations/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaHBBaEFJIiwiZXhwIjpudWxsLCJwdXIiOiJibG9iX2lkIn19--faf625b0d24008e4246893baf912e2d70e27d9ef/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaDdDem9VYzJGdGNHeHBibWRmWm1GamRHOXlTU0lLTkRveU9qQUdPZ1pGVkRvTWNYVmhiR2wwZVdsYU9ncHpkSEpwY0ZRNkRtbHVkR1Z5YkdGalpVa2lDVXBRUlVjR093WlVPZzlqYjJ4dmNuTndZV05sU1NJSmMxSkhRZ1k3QmxRNkRHTnZiblpsY25SSklnaHFjR2NHT3daVSIsImV4cCI6bnVsbCwicHVyIjoidmFyaWF0aW9uIn19--ab11f33cd0e3125b70ad0873c3efbc7224ec12c0/4fc0b3_ac8896b04c8843e392f63837bc2d2349~mv2.png)
Elísabet Þorgeirsdóttir
Elísabet Þorgeirsdóttir fæddist árið 1955.
Hún gekk í barna- og gagnfræðaskóla Ísafjarðar og Menntaskólann á Ísafirði. Hún er menntaður félagsráðgjafi.
Elísabet hefur verið virk í Samtökunum ‘78 um árabil og sinnti um árabil félagsráðgjöf í ráðgjafahópi Samtakanna. Hún starfar sem félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg en var lengi blaðamaður og ritstjóri, síðast á kvennatímaritinu Veru. Árið 1985 stofnaði hún ásamt öðrum konum félagið Íslensk-lesbíska sem hafði þann tilgang að styrkja sjálfsmynd lesbía og gera þær sýnilegar innan kvennahreyfingarinnar. Árið 1991 hóf hún að leggja stund á kvennaguðfræði sem er femínísk guðfræði á forsendum kvenna og var ein af stofnendum Kvennakirkjunnar og ein af stofnendum Trúarhóps Samtakanna ‘78 þar sem kristin trú var iðkuð á forsendum samkynhneigðra.
Elísabet var ritstjóri kvennablaðsins Veru á sínum tíma. Hún hefur skrifað smásögur og ort ljóð sem hafa birst í blöðum og tímaritum og auk þess skrifað fjölda tímaritsgreina um þjóðþrifamál, m.a. um vændi, femínisma og innflytjendur.
Elísabet hefur sent frá sér tvær ljóðabækur og tvær ævisögur.
Mynd: https://hinsegindagar.is/godra-kvenna-hopi/
Ritaskrá
- 1993 Þú gefst aldrei upp, Sigga! Ævisaga Sigríðar Rósu Kristinsdóttur
- 1986 Í sannleika sagt. Lífssaga Bjarnfríðar Leósdóttur
- 1983 Salt og rjómi eða blanda af göddum og dúni
- 1977 Augað í fjallinu