
Auður Önnu Magnúsdóttir
Auður Önnu Magnúsdóttir er fædd árið 1977 og hefur starfað við rannsóknir, stjórnun og málsvarastarf síðan hún lauk doktorsprófi í lífefnafræði frá Stokkhólmsháskóla árið 2008.
Auður hefur starfað að umhverfismálum og mannréttindamálum sem framkvæmdastjóri hjá Landvernd og Kvenréttindafélaginu.
Hún hefur sent frá sér eitt smásagnasafn með 12 sögum sem heitir Mæðrun – sýnisbók. Bókin fjallar um ýmis sjónarhorn á hlutverk mæðra og það sem mæður gera og hvernig væntingar þeirra sjálfra og samfélagsins stangast oft á með ófyrirséðum afleiðingum.
Ritaskrá
2026 Mæðrun – sýnisbók
2008 Doktorsritgerð
Auk fjölda ritrýndra greina
