Bókakvöld með upplestri skáldkvenna
Verið öll velkomin á bókakvöld Fjöruverðlaunanna og Kvenréttindafélags Íslands í kvennaheimilinu á Hallveigarstöðum, mánudagskvödlið 9. nóvember nk, þar sem höfundar lesa úr nýútkomnum bókum sínum. Heitt á könnunni, kakó og kleinur og gott aðgengi fyrir öll. Eftir upplestur verða léttar umræður við höfunda.

Fram koma:
Auður Ava Ólafsdóttir sem les úr bókinni Tengdasonur Íslands
Auður Önnu Magnúsdóttir sem les úr bókinni Mæðrun – sýnisbók
María Elísabet Bragadóttir sem les úr bókinni Þúsund barna móðir
Steinunn Sigurðardóttir sem les úr bókinni Veisla þrjú
Umræðum stjórnar Helga Dögg Björgvinsdóttir, formaður Fjöruverðlaunanna.
Fjöruverðlaunin eru bókmenntaverðlaun kvenna og kvára og eru veitt árlega í þremur flokkum:
flokki fagurbókmennta,
flokki fræðibóka og rita almenns eðlis
og flokki barna- og unglingabókmennta.
Í flokki fagurbókmennta eru tvenn verðlaun veitt, eða eitt skáldverk og ein ljóðabók.
Kynnist verðlaunahöfum fyrri ára og fylgist með fréttum af tilnefningum þessa árs!



