SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir∙ 3. nóvember 2026

Hvað býr í blóði mínu? Tengdasonur Íslands

Það sætir alltaf tíðindum þegar ný bók kemur frá Auði Övu (f. 1958). Skáldsaga hennar, Tengdasonur Íslands, var að koma út núna hjá Benedikt bókaútgáfu. Um hana segir í kynningartexta (sem er óttalegt hröngl):

“Undanfarið hef ég verið að reyna að finna út hvað býr í blóði mínu og komist að því að það þurfti margar tilviljanir og mörg kraftaverk til að ég yrði ég.

Í miðri síðari heimsstyrjöldinni skolar hér á land ungum vísindamanni með áhuga á skordýrum, villtum plöntum, fuglum og fjallgöngum og sem talar fjölmörg tungumál. Zakarías er blóðafi sögumanns, doktorsnema í mannerfðafræði sem býr með 103 ára ömmu sinni. Þær eru Valgerður yngri og Valgerður eldri og deila sameiginlegum missi.

Tengdasonur Íslands fjallar um hver við erum, hvaðan við komum og um tímann sem er ekki jökulá sem rennur að ósi heldur aftur á bak, að upptökum sínum. Og um afar langan endi ástarsögu.”

Auður Ava á stóran aðdáendahóp um heim allan og hefur rakað til sín verðlaunum og tilnefningum frá því Upphækkuð jörð kom út 1998. Bækur hennar hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál.

Hún sendi síðast frá sér DJ Bamba 2023, ansi hreint góða skáldsögu um transkonuna Logn, um sársaukann og sorgina og fordómana sem hún glímir við, en kynjaður heimur hefur alltaf verið höfundinum hugleikið viðfangsefni.

Tengt efni