SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir31. október 2022

NÝ SKÁLDSAGA eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur

Guðrún Eva Mínervudóttir var að senda frá sér nýja skáldsögu. Hún nefnist Útsýni og er nýkomin í verslanir. Guðrún Eva sendi síðast frá sér skáldsöguna Aðferðir til að lifa af árið 2019 en hún var tilnefnd bæði til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Í kynningu Bókatíðinda segir um Útsýni:

Sigurlilja er ung kona „sem passar ekki inn í normið“, eins og móðir hennar segir, og gædd óvenjulegri gáfu sem einfaldar ekki líf hennar. Þegar Teresa frænka hennar á Bakkafirði deyr kemur í hennar hlut að fara þangað norður og ganga frá dánarbúinu. Þá kemur í ljós að allir hafa eitthvað að fela – og sýna.

„Ég hef í einhverjum skilningi haldið niðri í mér andanum í ellefu ár. Frá því að ég var tvítug og gekk í svefni, missti meðvitund og upplifði eitthvað sem er gleymt en tilfinningin situr eftir í líkamanum. Ég er að bíða. Ég hef verið að bíða í allan þennan tíma …“

Útsýni er áhrifamikil saga um margvíslegt fólk sem hvert um sig glímir við tilvist sína, skrifuð af þeirri sérstæðu stílgáfu, næmi og mannlegu hlýju sem lesendur þekkja úr fyrri verkum Guðrúnar Evu Mínervudóttur. Síðasta bók hennar, Aðferðir til að lifa af, var tilnefnd af Íslands hálfu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Tengt efni