SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir 7. febrúar 2023

LÍTIL BÓK UM STÓRA HLUTI - Ný bók eftir Þórunni Valdimarsdóttur

Það er ævinlega fréttnæmt þegar Þórunn Valdimarsdóttir sendir frá sér verk, hvort sem það er af sagnfræðilegum eða fagurfræðilegum toga. Nýjasta bók hennar er funheit úr verksmiðjunni og ber titilinn Lítil bók um stóra hluti. Hugleiðingar. 

Á bakhlið bókar er birt tilvitnun sem sótt er í umfjöllun Þórunnar um samskipti kynjanna:  ,,Tókst mér ekki örugglega að ganga fram af öllum og sjálfri mér líka?" og textinn heldur áfram:

Það er samt ekki markmið höfundar að ganga fram af fólki heldur tekst hún hér á við stórar spurningar. Og hún gerir það á sinn hátt: stundum með stríðnislegu glotti eða blíðu brosi, stundum með ögrandi og nýstárlegum  hugmyndum og stundum með alvöruþunga og skarpri sýn. Hún lætur hér reyna á alls konar pælingar um hlutskipti okkar mannanna og framferði á jörðinni og skapar sífellt óvæntar tengingar af undraverðu áreynsluleysi, innblásin af tilvistarheimspeki og sagnfræði, náttúrulífsmyndum og auðvitað eigin lífsreynslu sem kona, fræðimaður, rithöfundur, móðir, eiginkona, skáld og manneskja. Hún fjallar um ræktun sálarinnar og orkustöðvar líkamans, kynlíf og ástarsambönd, Guð og guðleysi, fjarveru og nánd, náttúru og menningu. Hún er hispurslaus og fyndin, angurvær og ljóðræn, margbrotin og einlæg, hún sjálf, engri lík.