Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙11. febrúar 2023
AUÐUR AVA VERÐLAUNUÐ
Auður Ava Ólafsdóttir hlaut í vikunni spænsku bókmenntaverðlaunin San Clemente Rosalía-Abanca fyrir skáldsöguna Ungfrú Ísland sem valin var besta þýdda skáldsagan árið 2022. Á spænsku heitir bókin La escritora.
Á meðal þeirra sem hafa hlotið þessi verðlaun eru José Saramago, Paul Auster, Milan Kundera, Haruko Murakami og Julian Barnes.
Skáld.is óskar Auði Övu innilega til hamingju með verðlaunin.