Guðrún Steinþórsdóttir∙ 5. nóvember 2021
SMS-ljóð

1
Þegar ég hugsa um þig finn ég fiðrildi í brjóstinu, mig langar svo til að sýna þér eitt þeirra.
17
Ef þú kreistir á mér mittið kviknar ljós í hnakkanum. Ofsaljósið.
18
Þú horfir á mig horfa á þig. En guðdómlegt! Þetta er svo líkamlegt.
37
Þegar ég hugsa um þig langar mig, til að yrkja kínverskt ljóð, klúrt.