SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Guðrún Steinþórsdóttir22. október 2021

LJÓÐ VIKUNNAR - Klór, klór

Í ys og þys hversdagsins er stundum gott að staldra við og hlusta á líkamann og jafnvel lesa eitt ljóð eða tvö. Ljóð vikunnar er að þessu sinni eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur og heitir „Líkami tekur til máls“. Ljóðið birtist í bókinni Loftnet klóra himin (klór klór) sem Þórunn sendi frá sér árið 2008. Sú bók er önnur ljóðabók skáldkonunnar en hana myndskreytti hún með stórglæsilegum teikningum, ein þeirra prýðir bókakápu verksins sem má sjá hér til hliðar.
 
 
Líkami tekur til máls
 
Hafði vit á því í morgun
að fara ekki á fætur á undan vel-líðaninni.
 
Merki flóð og fjöru í líkama mínum.
Pissa fossi á háflæði
en varla neitt þegar tunglið togar laust
í mig og hafið.
 
Sé þegar neglurnar á tánum eru orðnar langar
að ég hef haft mikið að gera.