Helga Jónsdóttir∙ 3. september 2021
LJÓÐ VIKUNNAR - Bogi
Ljóð vikunnar er eftir Sunnu Dís Másdóttur og nefnist „Bogi“. Sunna er ein þeirra sex skáldkvenna sem mynda ljóðakollektívið Svikaskáld og birtist ljóðið í öðru ljóðverkinu sem þær gáfu út saman, Ég er fagnaðarsöngur (2018). Önnur ljóðverk sem Svikaskáld hafa sent frá sér eru Ég er ekki að rétta upp hönd (2017) og Nú sker ég netin mín (2019).
Bogi
Krosslegðu ekki fótleggi
segir amma
þú færð æðahnúta
en ég var í skátunum
ég hnýti mína eigin hnúta
ríð mín eigin net
tálga örvar
yfir sakamálaþáttum vetrarins
ein ör fyrir hverja
myrta konu
réttu úr bakinu
segi ég systur minni
sittu gleið
spenntu lífbeinið mót þeim
eins og boga