Helga Jónsdóttir∙ 6. ágúst 2021
LJÓÐ VIKUNNAR - leið nr. óttaslá
Ljóð vikunnar er eftir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur og birtist í bókinni Eilífðarnón (2019). Einn hluti verksins ber heitið „Sporbraut“ en þar eru taldar upp nokkrar óvenjulegar leiðir, m.a. „leið nr. óttaslá.“
Leið nr. óttaslá
glansandi myrkur
táldreg
djöfla
flæ
gæsahúð
vef úr efa efni
þræði hvísl í gegnum
illa nálaraugað
*
sauma skikkju
úr ótta
hún glansan
líkt og bjölluvængir
í sólinni
glansar
grænu gulli