SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir27. febrúar 2023

GLÆNÝ BÓK - Óbragð eftir Guðrúnu Brjánsdóttur

Í dag verður fagnað útkomu skáldsögunnar Óbragð eftir Guðrúnu Brjánsdóttur. Þetta er hennar þriðja frumsamda verk en áður hefur hún sent frá sér verðlaunasöguna Sjálfstýringu (2020) og ljóðabókina Skollaeyru (2017).

Óbragð talar beint inn í samtímann, líkt og kemur fram í kynningu bókar:

Óbragð er grátbrosleg ástar- og ferðasaga, full af skrautlegum persónum og skemmtilegum vendingum.

Hjalti veit ekki sitt rjúkandi ráð. Kærastan er farin frá honum, hann á bágt með svefn og í ofanálag sér hann ímyndaðar veggjalýs alls staðar. Það er því þreyttur og tættur maður sem ber að dyrum hjá nágrönnunum til að kvarta yfir hávaða – en þar er honum óvænt tekið opnum örmum og áður en hann veit af er hann kominn á bólakaf í hugleiðslu og kakódrykkju. En ekki er allt sem sýnist í sjálfshjálparhópnum Kakófylkingunni.

 

 

Útgáfuhófið verið í dag kl. 16:30 í Bókabúð Forlagsins að Fiskislóð 39. Öll eru velkomin.