LJÓÐAGJÖRNINGUR - á Ljósanótt
Það er heilmikil dagskrá á Menningar- og fjölskylduhátíðinni Ljósanótt í Reykjanesbæ og þar á meðal býður Eyrún Ósk Jónsdóttir skáldkona upp á ljóðagjörning á morgun, líkt og kemur fram á ljosanott.is:
Ljóðagjörningur kl. 17.00 í Miðju bókasafnsins. „Allir eiga sér sögu. Öll búum við yfir kærleika og höfum upplifað ástir og sorgir, hamingju og gleði.“
Eyrún Ósk Jónsdóttir flytur ljóð úr ljóðabók sinni Í svartnættinu miðju skín ljós við trommundirleik Akeem Richards sem spilar á afrískar trommur. Öll ljóðin byggja á persónulegum frásögnum fólks. Verkið er seiðandi og áhrifamikið og fjallar um málefni samtímans. Gjörningurinn tekur um 20 mínútur.
Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.
Hvar: Bókasafn Reykjanesbæjar | Miðjan
Hvenær: 31. ágúst kl. 17.00
Eyrún Ósk Jónsdóttir á að baki feril sem rithöfundur, leikari og friðarsinni.
Akeem Richard er þekktur hér á landi fyrir þátttöku sína úr stjórnmálum, menningarviðburðum, fjölmenningarviðburðum og fyrir störf sín í þágu fjölmenningar.
Ókeypis viðburður!