SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir 3. október 2023

ÓSÝNILEG SKÁLDKONA

Í dag bætist í skáldatal Margrét Jónsdóttir frá Búrfelli. Fátt er vitað um hana utan fæðingar- og dánardagur og að hún gaf út eina ljóðabók á eigin kostnað, þá rúmlega sjötug að aldri. Væri ekki fyrir þessa einu bók væri skáldkonan ósýnileg og löngu gleymd með öll sín ljóð og bænir.

Allar upplýsingar um þessa skáldkonu eru vel þegnar.

 

Tengt efni