SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir23. október 2023

ÁFRAM STELPUR - Kvennaverkfall og útgáfuhóf

Á morgun, þriðjudaginn 24. október, er Kvennaverkfall og verða baráttufundir um land allt. Hér má sjá dagskrána.

Eftir fundinn á Arnarhóli er boðið í útgáfuhóf í Pennanum, Austurstræti, en þar verður fagnað útkomu bókar Lindu Ólafsdóttur: Ég þori! Ég get! Ég vil!. Þetta er myndabók um kvennafrídaginn árið 1975, þegar konur gengu út af heimilum sínum og vinnustöðum og kröfðust jafnréttis. Bókin hefur áður komið út í Bandaríkjunum og hlotið þar góðar viðtökur.

Það er ekki ólíklegt að einn þekktasti baráttusöngur íslenskra kvenna muni óma en hér má hlýða á Kvennakórinn Kötlu flytja hann í myndbandi frá Kvennafrídeginum árið 2018. Í myndbandinu má einnig sjá hluta þeirra kvenna sem flutti lagið upphaflega, þann 24. október árið 1975. Textann allan má sjá hér fyrir neðan, ef einhver þarf að rifja hann upp fyrir morgundaginn:

 

ÁFRAM STELPUR

Í augsýn er nú frelsi,
og fyrr það mátti vera,
ný fylkja konur liði
og frelsismerki bera.
Stundin er runnin upp.
Tökumst allar hönd í hönd
og höldum fast á málum
þó ýmsir vilji aftur á bak
en aðrir standa í stað,
tökum við aldrei undir það.

En þori ég vil ég get ég?
Já ég þori, get og vil.
En þori ég vil ég get ég?
Já ég þori get og vil.

Og seinna börnin segja:
sko mömmu, hún hreinsaði til.
Já seinna börnin segja:
þetta er einmitt sú veröld sem ég vil.

(Viðlag)

Áfram stelpur standa á fætur
slítum allar gamlar rætur
þúsund ára kvennakúgunar.
Ef einstaklingurinn er virkur
verður fjöldinn okkar styrkur
og við gerum breytingar.
Atkvæði eigum við í hrönnum
komum pólitíkinni í lag
sköpum jafnrétti og bræðralag.

Áfram stelpur, hér er höndin
hnýtum saman vinaböndin
verum ekki deigar dansinn í.
Byggjum nýjan heim með höndum
hraustra kvenna í öllum löndum
látum enga linku vera í því.
Börnin eignast alla okkar reynslu,
sýnum með eigin einingu,
aflið í fjöldasamstöðu.

Stelpur horfið ögn til baka
á allt sem hefur konur þjakað
stelpur horfið bálreiðar um öxl.
Ef baráttu að baki áttu
berðu höfuð hátt og láttu
efann hverfa ‘unnist hefur margt.
Þó er mörgu ekki svarað enn:
því ekki er jafnréttið mikið í raun,
hvenær verða allir menn taldir menn
með sömu störf og líka sömu laun?

Texti: Dagný Kristjánsdóttir og Kristján Jónsson
Lag: Gunnar Edander