SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 7. nóvember 2023

LITIR Í MYRKRINU

Út er komin skáldsagan Litir í myrkrinu eftir Ólöfu Dóru Bartels Jónsdóttur og er verkið frumraun höfundar á sviði skáldskapar.

 

Í kynningu útgefanda á bókinni segir:

 

Áratugum saman hefur Þórunn dvalið á Kleppi vegna sálarmeins sem gróf hægt en örugglega undan tilveru hennar og lífsvilja. Umhverfið er hávaðasamt og krefjandi, herbergisfélagar óútreiknanlegir og einangrunin mikil. Dóttir Þórunnar stingur upp á að hún stytti sér stundir með því að líta yfir farinn veg og hekli minningar sínar í teppi. Með sex mismunandi litum heklar hún eitt stykki fyrir hvert ár, og rifjar upp liðna tíma. Að endingu verða sum stykkin björt og fögur, tákn um ást, barnsfæðingar og góð búskaparár. Önnur verða grá og svört, tákn um sorgir, búskaparraunir og barnadauða. Litir í myrkrinu er fyrsta skáldsaga Ólafar Dóru, sem byggir söguna að hluta til á ævi formóður sinnar.

 

 

 

 

Við óskum Ólöfu Dóru til hamingju með skáldsöguna og bjóðum hana um leið velkomna í Skáldatalið okkar.