SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 8. júní 2024

BIRGITTA BJÖRG GUÐMARSDÓTTIR HLÝTUR NÝRÆKTARSTYRK

 
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra afhenti Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta í Gunnarshúsi fimmtudaginn 6. júní og var það í 17. sinn sem styrkirnir voru veittir.
 
Styrkurinn í ár er veittur Birgittu Björg Guðmarsdóttur og Sölva Halldórssyni. Hvort þeirra hlýtur 500 þúsund krónur.

 

 

Valið úr innsendum handritum

Árlega veitir Miðstöð íslenskra bókmennta Nýræktarstyrki fyrir skáldverk höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum, óháð aldri, til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut. Átt er við skáldverk í víðri merkingu; sögur, ljóð, leikrit og fleira.

Nýræktarstyrkir hafa verið veittir frá árinu 2008 en valið er úr innsendum handritum. Að vali styrkhafa standa bókmenntaráðgjafar Miðstöðvar íslenskra bókmennta, með samþykki stjórnar. Í ár eru ráðgjafar þau Guðrún Steinþórsdóttir og Jóhannes Ólafsson. Í ár bárust 62 umsóknir um Nýræktarstyrki sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. 

Verkin sem hljóta viðurkenninguna í ár eru ólík; ljóðabók og skáldsaga. Yrkisefni verkanna eru margslungin, þau fjalla meðal annars um listsköpun, missi og sorg og tilfinningar tengdar hversdagslegum samskiptum og fjölskylduböndum.

Hér fyrir neðan má lesa kynningu á verkunum sem hlutu styrkinn og höfundum þeirra.

 

MOLDIN HEIT eftir Birgittu Björg Guðmarsdóttur

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

 

Moldin heit eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur er forvitnileg og vel skrifuð skáldsaga um listsköpun, sorg og missi. Með ljóðrænum stíl eru dregnar upp sterkar og áhrifaríkar myndir um leið og leikið er skemmtilega með form textans þannig að hann minnir einum þræði á dans – eina af þeim listgreinunum sem eru í brennidepli sögunnar. Á áreynslulausan hátt flakkar frásögnin fram og aftur í tíma þannig að lesendur kynnast aðalpersónum verksins mæta vel og fá aukinn skilning á flóknum samskiptum þeirra við aðra.

 

Birgitta Björg Guðmarsdóttir (f.1998) hefur lokið BA prófi í íslenskum fræðum og lýkur nú meistaranámi í Ritlist við Háskóla Íslands. Birgitta er stofnmeðlimur hljómsveitarinnar Ólafur Kram sem sigraði Músíktilraunir árið 2021. Hún hefur birt sögur og ljóð í TMM og tímaritinu Leirburði en skáldsagan Skotheld kom út árið 2018. Hún er meðlimur í þverfaglega listahópnum Heysahorn og í ljóðakollektívinu MÚKK. Birgitta starfar sem bóksali.

 

ÞEGAR VIÐ VORUM HELLISBÚAR eftir Sölva Halldórsson

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

 

Þegar við vorum hellisbúar eftir Sölva Halldórsson er hugmyndarík ljóðabók, full af leikgleði þar sem myndmáli er beitt á snjallan og óvenjulegan hátt. Ljóðin mynda sterka heild sem fanga vel tilfinningar tengdar hversdagslegum samskiptum og fjölskylduböndum. Sölvi dregur einnig fram á athyglisverðan hátt flókin og óræð tengsl við minningar úr æsku og gerir tilraun til að afhjúpa nostalgíu og einfaldanir á fortíðinni.

 

Sölvi Halldórsson (f. 1999) er fæddur og uppalinn á Akureyri. Hann lauk BA prófi í íslensku og dönsku frá Háskóla Íslands árið 2019, og meistaraprófi í ritlist frá sama skóla árið 2024. Sölvi hefur skrifað bókmenntarýni fyrir Víðsjá og birt ljóð í Pastel ritröð og ýmsum safnritum, nú síðast Munnbita Ástarsögufélagsins. Sölvi býr í Reykjavík og er meðlimur í ljóðakollektívinu Múkk.

Tengt efni