SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir18. október 2024

MARGRÉT LÓA JÓNSDÓTTIR HLÝTUR LJÓÐAVERÐLAUN TÓMASAR GUÐMUNDSSONAR

Margrét Lóa Jónsdóttir hlaut í gær ljóðaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið Pólstjarnan fylgir okkur heim. Alls bárust 38 óbirt handrit í samkeppnina og nema verðlaunin einni milljón króna. Pólstjarnan fylgir okkur heim er 12. ljóðabók Margrétar Lóu og gefur Salka hana út.

Umsögn dómnefndar hljóðar svo:

Ljóðmælandi situr á útikaffihúsi og hugsar um lífið og tilveruna.

Minningar leita á hana; minningar um látna ástvini, ljúfsár augnablik úr æsku og ferðalög á fjarlægar slóðir. Úr þessum minningum verður til ljóðrænt vitundarstreymi sem er í senn kjarnyrt og margrætt.

Pólstjarnan fylgir okkur heim er vandað og vel uppbyggt handrit með skýrum boga. Um er að ræða samfellda frásögn sem skiptist í mörg stutt, ónefnd ljóð sem saman mynda samhljóm er minnir á sinfóníu eða óhlutbundið kvikmyndaverk. Ljóðmálið er tært og grípandi og í gegnum handritið má finna magnaðar ljóðmyndir sem sitja lengi í huga lesanda að lestri loknum. Höfundur fetar fimlega einstigið á milli hins pólitíska og persónulega, án þess þó að vera prédikandi og þrátt fyrir að hér sé ort um flóttafólk, stríð og dauða þá liggur í gegnum handritið þráður vonar sem er ekki bara viðeigandi fyrir þá tíma sem við lifum, heldur ef til vill nauðsynlegur.

Táknmynd handritsins er Pólstjarnan, leiðarstjarnan sem í aldanna rás hefur vísað mannkyninu veginn um ókunn höf og lönd. Á sama hátt og Pólstjarnan vísaði sæförum veginn á öldum áður, vísar hún lesendum veginn í gegnum handrit sem við fyrstu sýn virðist ólínulegt en er þó jafn víðáttumikið og kunnuglegt og stjörnuhimininn. Pólstjarnan fylgir okkur heim er magnaður ljóðaseiður um lífið, dauðann, tímann innra með okkur og veraldarundrið vonina.

 

Skáld.is óskar Margréti Lóu innilega til hamingju með verðlaunin.