SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir16. nóvember 2024

NÝ SKÁLDKONA BÆTIST VIÐ SKÁLDATALIÐ

Hugrún Björnsdóttir hefur bæst við Skáldatalið. Hún sendi frá sér sína fyrstu bók í sumar en Rót alls ills kom út hjá Storytel í júlí.+

Rót alls ills er er rómantísk spennusaga og er þar aðalsöguhetjan, réttarsálfræðingurinn Kamilla Brim, kynnt til leiks. Í bókinni kemur Kamilla að rannsókn sakamáls en ásamt því þarf hún að takast á við gömul fjölskylduleyndarmál og flækjur í ástarlífinu.

Næsta bók í seríunni um Kamillu kemur út árið 2025.