SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir28. febrúar 2025

TAKIÐ DAGINN FRÁ: KVENNAÁRSSÝNING Á UNGFRÚ ÍSLAND

Þann 16. mars verður sérstök Kvennaárssýning í Borgarleikhúsinu á Ungfrú Ísland sem byggir á samnefndri verðlaunaskáldsögu eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Fyrir sýninguna verður gott partý með DJ, tilboðum á barnum og nægu plássi til að plotta, spjalla og tengjast. Eftir sýningu verða svo umræður með aðstandendum Kvennaárs og sýningarinnar. Fræðast má meira um Kvennaár hér.
 
 
Af vefsíðu Borgarleikhússins:

 

Verðlaunaskáldsaga Auðar Övu birtist hér ljóslifandi á Stóra sviðinu í mögnuðu sjónarspili. Hekla þráir að skrifa en það reynist fjarlægur draumur fyrir unga konu á Íslandi rétt eftir miðbik síðustu aldar. Draumurinn er enn fjarlægari fyrir Íseyju, sem er gift og komin með barn og eru sjálfkrafa allar bjargir bannaðar. Bara að fá að vera til á eigin forsendum virðist utan seilingar og hið sama upplifir hinn ungi Jón John.
 
Ungfrú Ísland er kyngimögnuð saga sem gerist á barmi byltinga, fangar tíðaranda og tilfinningar. Þetta er saga um baráttu fólks fyrir höfundarétti á eigin lífi á tímum þegar sjálfstæði kvenna og hinseginleiki voru þyrnar í augum íhaldsams samfélags, barátta sem enn er háð í dag. En þetta er einnig saga um sjálfan sköpunarkraftinn, lífsviljann og ævarandi leit að betri heimi, þar sem allt það sem ekki er orðið til kraumar undir yfirborðinu og brýtur sér leið í ljósið með tilheyrandi titringi og átökum.
 
Ritsnilld Auðar Övu er landsmönnum að góðu kunn og hér má finna leiftrandi húmor, þungan harm og heillandi fegurð.