SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir31. maí 2025

LJÓÐA SLAGUR, REISUGAR RÁNARDÆTUR OG FLYÐRA

Nú styttist mjög í Sjómannadaginn og kemur þá Látra-Björg (f. 1716) óhjákvæmilega upp í hugann. Það hvílir einhvers konar goðsagnakenndur blær yfir Látra-Björgu og um hana leikur margt á huldu en hún var víst sjókona og auk þess kraftaskáld. Til marks um það þykir vera vísa sú er hún orti þegar henni fannst sigling hafa dregist mjög en áhrínsorð vísunnar eru sögð hafa gengið eftir:

Vaxi mugga og vindurinn,
vil ég brugga ljóða slag,
sigli dugga ein hér inn
oss að hugga nú í dag.

 

Þá gekk henni jafn vel að lægja vindinn því eitt sinn er Látra-Björg var stödd á sjó í slæmu veðri báðu skipverjar hana um að kveða niður vindinn, sem hún og gerði: 

Bið ég höddur blóðugar,
þótt bregði upp faldi sínum,
ránardætur reisugar,
rassi að vægja mínum.

 

Einnig gat komið sér vel að vera kraftaskáld þegar fiskaðist illa en svo segir frá að Látra-Björg hafi strax fengið lúðu á öngulinn eftir að hafa kveðið þessa vísu:

Sendi drottinn mildur mér,
minn á öngul valinn,
flyðru þá sem falleg er,
full hálf þriðja alin.

 

Mynd: Sigfús Eymundsson (1837–1911) - Líklega 1891, Reykjavíkurhöfn, Geirsbryggja. (Af síðu Sjóminjasafnsins í Reykjavík)