SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir 5. júní 2025

HREIN OG FÖGUR GJÖRÐU GLÓA

Afmælisbarn dagsins er Skáld-Guðný

Hún fæddist þann 5. júní árið 1813.

Hér eru erindi af rímum Guðnýjar sem hún orti til handa dóttur sinni Áslaugu. Áslaug var send í fóstur aðeins 3 ára.

Ríma af hreindýrsinnu úr ljóðabókinni ,,Hugurinn einatt hleypur minn

I Mansöngur

Kann ég ei þó kitli fjör því kalt er blóðið
blessuð ástin braga þýða,
bögu þér til gamans smíða.
 
Þó þér komir lítilát og ljúf í svörum,
undir sóma hvítu hærum,
hugar sveipuð draumi værum.
 
Þig skal meta mæta fyrir milding ása,
laugar sem að lundinn prísar,
laukum vænni paradísar.
 
Títt á armi tárug sat mín turtildúfa,
kossa væra kunni gefa
kvendið fyrir þulur stefa.
 
Brosleit var þó bæri móð í blíðu sinni
þegar kvað ég kærum svanna
kvæðin dýru þjóðskáldanna.
 
Yndi veitti anda þegar augun bláu
hrein og fögur gjörðu glóa
gegnum spegil táraflóa.
 
Hét ég bæði og hélt að skemmta ei hal né sprundi,
síðan týndist mér úr mundu
meyjarblóm á æsku stundu.
 
Bak við heiminn ganta greitt með gleðiblæju.
Hver má vita hans er þreyir
hugarkvöl ef engum segir?
 
Hlustið á því honum má ei harma þíða
lindin smá og lilja rjóða,
líka blágrjótshellan góða.
 
Hrelling grynnir hjá þeim sem í húmi lendi,
viti menn í vonarlundi
vært um spennast hlýjum blundi.
 
Meðan eygi af drottins degi dýrðar brána
hótun ei að hræðast þína,
hels á vegi brand ófrýna.
 
Laugin ósa, eyrar rósa, æru þrifna,
dáður kjósi, dyggðum safni,
dygg í ljósa föðurnafni.
 
Elskan hreina er sú rós sem um má vitna,
hvergi kann að bogna, brotna,
brenna, visna, fölna, rotna.
 
Heilög gyðjan, hara venslu himna fróna,
dauðinn má ei deyða hana
sem dauðann gerir máttarvana.
 
Kveðja Magnea

Tengt efni