SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir 9. nóvember 2025

HVALBAK

Út kom fyrir stuttu ljóðabókin Hvalbak eftir Mao Alheimsdóttur.  Þetta er hennar önnur ljóðabók.

Bókin er full af skemmtilegum ljóðum sem gaman er að lesa. Í bókinni vappar hún um hvalbakinn, kannar jarðlögin og veltir fyrir sér loftslagsmálum.

Úr iðrum jökuls
sækir hún minningarrit
tuttugu míkron að stærð
fingrafar öskunnar
dökkt    ljóst

Og útskýrir með efnatáknum að viðkomandi hlutur sé samansettur úr gjóskulagi frá landnámi og lýsir honum sem dökkum neðri hluta og ljósum efri hluta og svo brennisteinssýru,  stærð og tíma.

GRIP
871
0,02
H2SO, HCI 8180
VII a+b
Vö 900

Nýstárlegt ljóð það.

Mao leikur sér líka með tungumálið, hnýtir saman orð í fallegan ljóðasveig. Stundum finnst mér hún lýsa manneskjum, kannski eru Íslendingar eins og  jöklar, kaldir og hrjúfir?         

til hliðar
undan halla
sprungúfinn
svelgjagrafinn
þakinn sandi og leir
skríður hann niður
að mér
 

og

ástin mín
vaxin gisnu kræklóttu birki
lyngi
fjalldrapa
jökulborin heiðin mín
ofin ótalmörgum vötnum
smátjörnum
stórum sem litlum ám
með sumarsól að birtast og hverfa
til skiptis eins og vofa
í tærri og þykkri til skiptis
kvöldþoku
með kindum og lömbum
að líta upp úr grasi
þögn þeirra
rýf ég
með hávaða vélar
 

Bókinni er skipt upp í 3 kafla. Á undan formáli og svo eftirmáli. Fyrsti kaflinn heitir Upptök, næsti Flóð og sá þriðji Áður en. Þessi bók hefur að geyma áhugaverðar pælingar um náttúruna sem vert er að lesa.

Kveðja

Magnea

https://skald.is/skaldatal/537-mao-alheimsdottir