SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir 1. febrúar 2026

GUNNÞÓRUNN SVEINSDÓTTIR

Gunnþórunn Sveinsdóttir 1885-1970 listakona og ljóðskáld frá Mælifellsá, fædd í Borgarey í Vallhólmi, Skagafirði þann 2. febrúar og er því afmælisbarn dagsins. 
 
Gunnþórunn var kunn fyrir listrænan ferskleika eins og Hörður Ágústsson kemst að orði í umfjöllun sinni um hana í Birtingi 1. tbl. árið 1963. Hann fjallar um verk hennar af yfirvegun og kunnáttu fræðamanns sem þekkir til þeirra sem teljast til alþýðulistamanna. Fólks sem lítt gaumur var gefin en áhugavert engu að síður. Gunnþórunn var ekki bara málari heldur gat hún hent fram stökum eins og þessari til dæmis.
 
Hún gaf út ljóða og minningarbókina ,,Gleym mér ei" árið 1957
Hér er ein fleyg eftir hana.
 

Ef það gleður anda minn

enn skal fjúka staka.

Þótt hnútum kasti heimurinn

hendi ég þeim til baka

 

Tengt efni