
Gunnþórunn Sveinsdóttir
Gunnþórunn Sveinsdóttir frá Mælifellsá fæddist árið 1885. Ljóðskáld og listmálari.
Gunnþórunn var kunn fyrir listrænan ferskleika eins og Hörður Ágústsson kemst að orði í umfjöllun sinni um hana í Birtingi 1. tbl. árið 1963. Hann fjallar um verk hennar af yfirvegun og kunnáttu fræðamanns sem þekkir til þeirra sem teljast til alþýðulistamanna.
Gunnþórunn gaf út ljóða og minningarbók árið 1957.
Gunnþórunn lést árið 1970.
Ritaskrá
- 1957 Gleym mér ei
