MEYJAR OG VÖLD, FRÖKEN DÚLLA og fleiri áhugaverðar bækur tilnefndar til Verðlauna Hagþenkis
Í gær var tilkynnt hvaða fræðirit sem komu út 2025 eru tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis. Fullyrða má að Viðurkenning Hagþenkis eru virtustu verðlaun sem fræðimenn og kennslubókahöfundar eiga kost á að hljóta - auk þess sem verðlaunaféð er meira en annars staðar í íslenskum verðlaunaveitingum, ein og hálf milljón. Kynning verður á tilnefndum verkum laugardaginn 14. febrúar kl. 13-15 í Borgarbókasafninu í Grófinni.
Tíu rit eru tilnefnd og kennir þar ýmissa grasa:

Kristín Svava Tómasdóttir. Fröken Dúlla. Ævisaga. Benedikt.
Vönduð og afar læsileg ævisaga Jóhönnu Knudsen, hugsjóna- og hjúkrunarkonu, sem starfaði meðal annars fyrir umdeilt ungmennaeftirlit á tíma ástandsins svokallaða.

Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir. Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Athyglisverð umfjöllun um einstakar rímur sem hafa aldrei áður komið út á prenti. Saga þeirra er rakin í víðu samhengi, greint frá handritum og bent á mögulegan höfund.

Davíð Ólafsson og † Arndís S. Árnadóttir. Mynd og hand. Skólasaga 1939–1999. Sögufélag.
Hin merka saga Myndlista- og handíðaskóla Íslands er rakin frá stofnun skólans þar til hann varð hluti af Listaháskóla Íslands. Grundvallarrit í sögu skóla og myndmennta.

Garðar Gíslason og Blær Guðmundsdóttir. Ég og umheimurinn. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Þriðja hefti vandaðs kennsluefnis í samfélagsgreinum fyrir miðstig grunnskóla ásamt góðum kennsluleiðbeiningum á vef. Lipur texti í ríkulega myndskreyttri bók.

Andri Þorvarðarson. Fjölbraut í 50 ár. Saga Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1975–2025. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.
Áhugaverð og lipurlega skrifuð saga fyrsta fjölbrautaskólans á Íslandi, sem jafnframt endurspeglar margvíslegar breytingar sem orðið hafa í samfélaginu síðastliðna hálfa öld.

Daníel Bergmann. Fuglar og fuglastaðir. Árbók Ferðafélags Íslands 2025.
Frumleg nálgun þar sem fuglaskoðun á einstökum landsvæðum er kynnt og fjallað um fuglaljósmyndun, framlag áhugamanna og fleira. Einstakar ljósmyndir og vönduð kort.

Einar Falur Ingólfsson. Kristján H. Magnússon. Listamaðurinn sem gleymdist. Veröld.
Vandað og glæsilegt verk um myndlistarmann sem hefur fengið takmarkaða athygli. Bókin er byggð á víðtækri rannsókn um verk Kristjáns og æviferil.

Kjartan Atli Ísleifsson. Skrifarar sem skreyttu handrit sín. Alþýðulist og skreytingar í handritum síðari alda. Háskólaútgáfan.
Frumrannsókn sem varpar nýju ljósi á skreytingar í handritum alþýðuskrifara. Mikilvæg viðbót við rannsóknir á sviði íslenskrar handritamenningar.

Sigfús Jónsson og Sveinn Agnarsson. Sjávarútvegur Íslendinga 1975–2025. Fyrra bindi: Starfsumhverfi og stjórnsýsla. Hið íslenska bókmenntafélag.
Greinargott og upplýsandi yfirlit laga og reglna um undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Fjallað er meðal annars um kvótakerfið, vinnumarkað, hafrétt og smábátaútgerð.

Sigurjón Árni Eyjólfsson. Abstraktmálverkið. Helgimynd íslenskrar menningar á 20. öld? Hið íslenska bókmenntafélag.
Frumleg listfræðileg nálgun um tengsl abstraktlistar við framfaratrú og veraldarhyggju með hliðsjón af hugmyndafræðilegum átökum í víðara samhengi samfélags og trúar.
Viðurkenningarráð Hagþenkis er skipað fimm félagmönnum til tveggja ára i senn og í því voru fyrir útgáfuárið 2025: Arnþór Gunnarsson, Árni Sigurjónsson, Ásdís Ingólfsdóttir, Ingibjörg Eyþórsdóttir og Kristján Leósson, Friðbjörg Ingimarsdóttir, framkvæmdastýra Hagþenkis sér um verkstjórn og hittist ráðið vikulega frá október til janúar. Viðurkenning Hagþenkis verður veitt í byrjun mars við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunn og hún felst í heiðursskjali og 1.500.000 kr.
