SALKA VALKA Á SÖGULOFTINU

Í gær var frumsýnd á Söguloftinu á Landsnámssetrinu í Borgarnesi nýr einleikur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur sem hún vann upp úr skáldsögu Halldórs Laxness, SÖLKU VÖLKU og kallar: SALKA - ástin og dauðinn. Mikið lof hefur farið á flug um frumsýninguna og þótt ritstjórn Skáld.is hafi ekki enn séð verkið finnst okkur óhætt að mæla með því fyrirfram; við þekkjum verk Unnar Aspar af góðu einu!
Af þessu tilefni viljum við minna á grein sem finna má hér á vefnum um hið átakamikla mæðgnasamband - samband Sölku og Sigurlínu - sem dregin er upp í skáldsögu Laxness. Greinin heitir HVAÐ ER KONA AF KONU FÆDD - GETUR HÚN ALDREI ORÐIÐ FRJÁLS? og er yfirskriftin sótt í skáldsöguna.
Þótt einleikur Unnar Aspar hafi aðeins verið frumfluttur í gærkvöldi er eftirspurn eftir miðum mikil og uppselt á margar sýningar. Vert er því að tryggja sér miða sem fyrst en þá má kaupa á vefnum tix.is
Myndir voru sóttar á vef Landnámssetur og Þjóðleikhússins.
