SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir17. febrúar 2026

NÝ BÓK FYRIR FÓLK AF ERLENDUM UPPRUNA

Kristín Guðmundsdóttir hefur nú sent frá sér bókina Handan dalanna. Þetta er sjöunda verkið sem Kristín skrifar fyrir fólk af erlendum uppruna sem er komið á 3. stig í íslenskunámi. Bókin er svipuð uppbyggð og fyrri sögur hennar þar sem lögð er áhersla á skýrar tilvísanir í erfið orð og orðasambönd en hér mætir lesandinn nýjum persónum, nýjum viðburðum og öðru umhverfi.

Í bókinni eru 12 stuttar og sjálfstæðar sögur. Fólk af erlendum uppruna hafði bent Kristínu á erfið orð og orðasambönd og hvað því fannst furðulegt á Íslandi sem hún vinnur með í bókinni. Þannig verður textinn lifandi og hversdagslegur en um leið aðgengilegur þeim sem eru að dýpka málskilning sinn. Bókin er einnig prýdd handteiknuðum myndum sem styðja við frásögnina.

Bókin er þarft og gott lesefni sem þjónar vaxandi hópi fólks af erlendum uppruna sem leitar að vönduðu lesefni.

Hér má nálgast viðtal við Kristínu um bókina.