SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir28. febrúar 2026

Blæja hvítra himinljósa

Skáld dagsins er Ragnheiður Magnúsdóttir 1897 frá Hvítárbakka er ný í safninu okkar. Hér eru nokkur ljóð eftir hana.

         Blæja hvítra himinljósa

Blæja hvítra himinljósa
hefur lagst í vetrar spor.
Gulnuð visnuð grösin frjósa,
grösin, sem ég kyssti í vor.
 
Þegar fanna fötum klæddust
fögru vetrarblómin öll,
vonir, sem í fyrra fæddust,
fólust undir kaldri mjöll
 
Himinrósir hverfa allar,
hýrnar blær, er sólin skín.
En hvernær losna úr læðing mjallar
ljúfu vonarblómin mín?
 
Ótryggð
 
Í vor, þegar sólgyðjan klappaði á kinnar
og kossana´ á enni mitt hrynja lét
þá grét e´g af ótryggð elskunnar minnar,
- í iðgrænu túninu lá ég og grét.
 
Í haust, þegar logar á arninum inni
og úti er grasfölvinn hulinn af snæ,
- nú hlæ ég að eigin ótryggð minni,
í ískaldri fjörunni stend ég og hlæ.

 

 

Tengt efni