SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ragnheiður Magnúsdóttir

Ragnheiður Magnúsdóttir fæddist á Gilsbakka 17. ágúst 1897 og  lést 1981. Hún bjó á Hvítárbakka í Borgarfjarðarsýslu.

Hún var dóttir hjónanna Sigríðar Pétursdóttur Sívertsen og Magnúsar Andréssonar prófasts. Ragnheiður naut heimakennslu föður síns og stundaði sjálf barnakennslu veturinn 1918-1919. Hún fór til Danmerkur og lærði þar í hússtjórnarskóla í Kolding. Ragnheiður giftist Guðmundi Jónssyni frá Reykjum í Lundareykjadal 12. júní 1921.

Ragnheiður orti töluvert en var dul á sinn skáldskap. Reyndin er sú að Ragnheiður orti töluvert af ljóðum og kvæðum sem voru birt í blöðum og tímaritum en þá oftast undir dulnefni. Hún bæði þýddi ljóð og frumsamdi. Nokkur ljóð eru eftir hana í ljóðasafninu ,,Þá rigndi blómum" 1991. Á Ísmús má finna ljóðið ,,Dansaðu við mig dimmavals" 

Morgunblaðið - 232. tölublað (17.10.1981) - Tímarit.is


Ritaskrá

1991 Þá rigndi blómum

Tengt efni