SKÁLDASUÐ Á SUÐURNESJUM

Skáldasuð er ljóða- og listahátíð suður með sjó þar sem reyndir og nýir listamenn og skáld geta komið saman og átt samtal við áheyrendur. Skáldasuð er nú haldin í þriðja sinn og að þessu sinni seinna en áður, þ.e. dagana 9.-26. apríl.
Hátíðin er um allan Reykjanesbæ, ljóð í leiðinni á göngustígum og í kjörbúðum, ljóð í lauginni í Stapalaug og Vatnaveröld og upplestrar og sýning í Duushúsum. Hátíðin er hugarfóstur listamannsins og skáldsins Gunnhildar Þórðardóttur en hún hefur starfað sem virkur myndlistarmaður og skáld í yfir tuttugu ár og starfar einnig sem kennari.
Hátíðin fer í útrás í maílok til Seyðisfjarðar og Egilsstaða. Flestir listamenn sem taka þátt í sýningunni tengdir Suðurnesjum og Austfjörðum.
Skáldasuð er líka fyrir börn og ungmenni sem geta tekið þátt í sem skapandi einstaklingar. Ljóð verða sýnileg og víða að finna, s.s. á göngustígum, í búðum og sundlaugum.
Laugardag 18. apríl kl.13 verður svo ljóðalistsmiðja fyrir börn og foreldra í Duushúsum.
Örupplestrar verða í sundlaugum og á göngustígum á dagana 17. og 24. apríl og á meðan á hátíðinni stendur. Þeim verður varpað á facebook síðu Skáldasuðs.
Verið velkomin!
