AFMÆLISLJÓÐ, TÝND LJÓÐ, MYNDIR OG HÚS - Um Ólöfu frá Hlöðum
„Á fimmtugsafmælinu sínu 9. apríl 1907 situr Ólöf Sigurðardóttir í litla húsinu sínu á Hlöðum og skrifar Þorsteini Erlingssyni bréf. Í fyrra bréfi, frá 28. október árinu áður, hafði hún beðið hann að gera sér greiða, en þá höfðu bréfaskipti þeirra legið niðri í fjögur ár...Þorsteini tókst ekki að fá ljóðin gefin út í Reykjavík, og það sem meira er, hann týndi þeim. Á næstu fimm árum skrifar Ólöf honum jafnt og þétt og spyr um ljóðin og væntanlega útgáfu.”
Frá þessu segir Helga Kress í grein sem hún kallar Þetta ólukku dót sem birtist fyrst í Heimaslóð. Árbók Hörgársveitar 2015.
Ólöf skáldkona frá Hlöðum (1857-1933) orti afmælisljóð til sjálfrar sín þegar hún átti merkisafmæli en afmælisdagur hennar er í dag, 9. apríl. Fram kemur í áhugaverðri grein eftir Helgu Kress að það var ekki óalgengt að skáldkonur ortu þannig kvæði. Í greinininni er tengt við sérstakan tíma kvenna, stöðnun í samfélaginu þar sem ekkert breyttist varðandi hlutskipti þeirra og hrörnun líkama sem hefur það hlutverk að vinna heimilisstörf og eignast börn. Greinin heitir „Í kvöld er ég fimmtug.“ Afmælisljóð kvenna til sjálfra sín. Helga Kress hefur gefið skáld.is góðfúslega heimild til að birta fræðigreinar hennar og er greinin um afmælisljóðin aðgengileg hér.
Í tilefni dagsins má hlusta Hér á áhugaverðan útvarpsþátt um hús Ólafar á Hlöðum í Hörgársveit og varðveislu þess. Ekkert hús á Íslandi er kennt við skáldkonu.
Nokkrar ljósmyndir eru til af Ólöfu. Efri myndin er úr tímaritinu Eimreiðinni frá 1957. Ætla má að þarna sé Ólöf tilbúin að stíga á bak fáki sínum og þeysa burt.

Á fb-síðu Kvennasögusafnsins er þessa ljósmynd af Ólöfu að finna; þetta er fögur og lífsreynd kona.



