SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir15. apríl 2026

ÚTGÁFUFÖGNUÐUR: Í HÆFILEGU MAGNI

Á morgun fagnar Heiða Vigdís Sigfúsdóttir útkomu nýjustu bókar sinnar,     Í hæfilegu magni.

Þetta er annað verk Heiðu Vigdísar, sem hún stendur ein að. Það fyrra er skáldsagan Getnaður (2022) en handrit hennar bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir.

Skáldsagan Getnaður er kynnt svo:

Getnaður eftir Heiðu Vigdísi Sigfúsdóttur inniheldur hispurslausar og bráðfyndnar ástarsögur um þrítugt fólk í Reykjavík sem fléttast saman á óvæntan hátt. Djammið dunar en fullorðinspressan fer sívaxandi: Íbúð, barn og bíll vofa yfir en er tímabært að búa til barnabarn handa mömmu þegar ekki er einu sinni hægt að vera sammála um sjónvarpsdagskrána? Og hver ber ábyrgð á öllu sæðinu sem streymir linnulaust fram í miðborginni um helgar?

 
Fátt segir enn af efni nýju skáldsögunnar, Í  hæfilegu magni, og verður því spennandi að fá hana í hendur. 
 
Útgáfuhófið verður haldið í bókabúð Forlagsins við Fiskislóð og hefst dagskrá kl. 17:00. Þar mun skáldkonan lesa upp úr bókinni og árita hana á útgáfutilboði. Lofað er léttum veitingum, búbblum og magadansi.