SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir14. apríl 2026

HÖFUNDAKVÖLD OG RITLISTARBÚÐIR

Höfundakvöld 14. apríl
 
Í kvöld verður boðið upp á höfundakvöld á vegum Iceland Writers Retreat í Norræna húsinu. 
 
Eliza Reid og Erica Green, stofnendur IWR, stýra upplestri og umræðum. Susan Choi, Ann-Marie MacDonald, Evan Osnos, Kamila Shamsie, Nana Kwame Adjei-Brenyah og fleiri lesa úr verkum sínum.  
 
Viðburðurinn er í samstarfi við Norræna húsið og Íslandsstofu.
 
Dagskrá hefst kl. 20 og stendur til 21:30. Ókeypis aðgangur og öll velkomin
 
Í hléi verða veitingar í boði sendiráðs Kanada. Eymundsson verður með pop-up verslun á staðnum þar sem hægt verður að kaupa bækur eftir höfunda kvöldsins/þessa árs.
 
Viðburðurinn fer fram á ensku og verður streymt í beinni: https://vimeo.com/event/5857300
 
 
Ritlistarbúðir 15.-19. apríl
 
Í kjölfar höfundakvölds verða haldnar ritlistarbúðirnar Iceland Writers Retreat. 
 
Víðfrægir höfundar frá mörgum löndum leiðbeina þar þátttakendum á málstofum um ritlist og bókaskrif. Í ár eru Susan Choi, Ann-Marie MacDonald, Evan Osnos, Kamila Shamsie, Nana Kwame Adjei-Brenyah meðal leiðbeinenda.
 
Allar upplýsingar um höfunda okkar er að finna á heimasíðu Iceland Writers Retreat