ÞRÍR MENN REYNDUST VERA EIN KONA
Ein stærsta ráðgáta í útgáfuheiminum hefur verið leyst eftir að metsöluhöfundur Bandaríkjanna, sem milljónir lesenda þekkja sem Freida McFadden, steig fram undir sínu rétta nafni sem er Sara Cohen. Það hefur alltaf verið ljóst að Freida McFadden er dulefni en Cohen segist hafa verið orðin þreytt á þessum feluleik og vangaveltum fólks á borð við hvort að þrír menn standi að baki dulnefninu (!) eða hvort hún sé yfirleitt raunveruleg manneskja.
Áður en McFadden varð rithöfundur starfaði hún sem læknir sem sérhæfði sig í heilasjúkdómum. Vegna þessa ákvað hún að skrifa undir dulnefni, líkt og hún segir í viðtali sem birtist í Today:
My whole goal was to keep it a secret until I was (ready to) step back from my doctor job, so it wouldn’t be like everyone I work with suddenly knew and it compromised my ability to do my job.
Nafn McFadden er þekkt hér á landi. Á íslensku hafa komið út bækurnar Undir yfirborðinu (The Housemade) og Það sem þernan sér (The Housemade's secret) í þýðingu Ingunnar Snædal. Þá var kvikmyndin The Housemade nýlega sýnd hér í kvikmyndahúsum.
Cohen/McFadden hefur enn fremur verið einn vinsælasti höfundur heims undanfarin ár; hún var annar söluhæsti höfundur ársins 2025 í Bretlandi, og seldi þar 2,6 milljónir bóka, og auk þess hafa selst sex milljónir bóka í heimalandi hennar. Hún er mjög afkastamikil og hefur skrifað 29 skáldsögur. Hér má skoða heimasíðu höfundar.