SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir25. apríl 2026

KURSK - SAMHENGI OG EFNIVIÐUR

Samhengi er alls konar, efniviður skálda er víða.

Frétt úr Morgunblaðinu, 14. ágúst árið 2000 vakti óhug:

Allir í áhöfn rússneska kafbátsins Kursk, sem liggur á 100 metra dýpi í Barentshafi, gætu verið látnir nú þegar. Þetta er haft eftir breskum flotaforingja í norska netmiðlinum Nettavisen. Þar kemur einnig fram að orsök þess að báturinn sökk sé að hann hafi lent í árekstri, hugsanlega við erlendan kafbát. 107 manna áhöfn er í kafbátnum og hefur ekkert talstöðvarsamband náðst við kafbátinn eftir að hann sökk. Hins vegar hefur rússneska fréttastofan ITAR-Tass eftir heimildarmanni í rússneska sjóhernum að björgunarmenn hefðu náð sambandi við áhöfnina með því að berja á skrokk bátsins.

Frétt í DV, 2. nóvember 2024:

Í ágúst 2000 sökk einn stærsti kjarnorkukafbátur heims, hinn rússneski Kursk, til botns og sat þar fastur á 107 metra dýpi, á botni Barentshafs. Um borð voru 118 rússneskir sjóliðar, og létust 95 samstundis en 23 sátu dögum saman og biðu eftir björgun sem aldrei barst. Þegar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, mætti brosandi í viðtal hjá Larry King á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN þann 8. september 2000 var hann spurður hvað hefði komið fyrir. Svarið var tvö orð: „Hann sökk.“

Ljóð Steinunnar G. Helgadóttur um örög Kursk fékk Ljóðstaf Jóns úr Vör 2011:


KAF

Sólin lýsti bara upp

yfirborðið

þegar Kursk hvarf

í djúpið.

Hjátrúarfullar eiginkonur

sátu heima.

Þorðu ekki að kveðja.

 

Sjónpípan er

hettuklædd slanga

og spegilauga skoðar

hafflötinn.

Það er

íshröngl úti.

 

Inni er

móða sólbekkir

sex metra sundlaug

sána tafl fiskabúr

kvikmyndir pottaplöntur

köttur ruggustólar.

Suðrænar strendur og

Furuskógar

í myndvarpanum.

Eldkúla

og að lokum

tíminn.

 

(úr fyrstu ljóðabók Steinunnar, Kafbátakórinn 2011)

 

 

 

Tengt efni