SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir 7. ágúst 2026

TIL HELJAR OG HEIM

Guðrún Finnbogadóttir er nýjasta konan okkar inn á skáld.is Guðrún vann lengi sem kennari, bæði í Þinghólsskóla í Kópavogi og í Menntaskólanum í Kópavogi.

Upp úr 1980 flutti Guðrún ásamt Ómari syni sínum til Nancy í Frakklandi en þá hafði Fahad, eldri sonur hennar, þegar verið búsettur þar um tíma. Eftir tveggja ára dvöl í Nancy lá leiðin til Parísar þar sem Guðrún gerðist fréttaritari RÚV, en vann einnig við þýðingar á bókmenntaverkum úr frönsku og rússnesku.

Guðrún skrifaði einnig tvær bækur: Til Heljar og heim - þrjú ár í Rússlandi, sem kom út hjá Máli og menningu árið 1994, og Milli landa – fimm íslenskar konur í París árið 1995 hjá Fróða hf. Hún þýddi margar skáldsögur og önnur rit, auk þess að vera pistlahöfundur fyrir blöð og tímarit hér heima. Á þessum árum bjó Guðrún víðsvegar um Frakkland, meðal annars í Arles í Suður-Frakklandi og í Auvergne-héraði.

Árið 2002 flutti Guðrún alfarið til Íslands og vann við kennslu í Varmalandsskóla í Borgarfirði þar til hún fór á eftirlaun. 

Í þáttaröð sem Gunnar Þorri Pétursson gerði fyrir RÚV, Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum, er fjallað um bók Guðrúnar Finnborgadóttur Til heljar og heim í 5. þætti. Þátturinn var endurfluttur á rás 1 þann 7. ágúst 2026 og má hlusta á hann í Sarpi RÚV: Útvarp - Spilari RÚV

 

 

Tengt efni