
Guðrún Finnbogadóttir
Guðrún Finnbogadóttir fæddist á Marbakka á Kársnesi 21. september 1940. Hún lést á Landspítalanum 12. nóvember 2025 eftir langa baráttu við krabbamein.
Guðrún var þriðja barn foreldra sinna, Huldu Dóru Jakobsdóttur og Finnboga Rúts Valdimarssonar. Systkini hennar voru: Elín, Finnbogi, Sigrún, Hulda og Auður, en þau eru öll látin. Guðrún ólst upp með systkinum sínum í Kópavogi og lauk síðan stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík. Eftir stúdentspróf fór hún til náms í Leipzig í þáverandi Austur-Þýskalandi og dvaldi einnig við nám í Moskvu á þessu tímabili. Í Leipzig kynntist hún Abdel Fattah El-Jabali. Þau giftust og eignuðust tvo syni, þá Fahad Fal, f. 1963, og Ómar, f. 1976. Undir lok sjöunda áratugarins fluttust þau heim til Íslands og bjuggu víðsvegar í Reykjavík, en einnig á Patreksfirði þar sem Abdel-Fattah var héraðslæknir um tíma. Eftir þann tíma fluttu þau aftur á Kársnesið í Kópavogi.
Guðrún vann lengi sem kennari, bæði í Þinghólsskóla í Kópavogi og í Menntaskólanum í Kópavogi. Upp úr 1980 flutti Guðrún ásamt Ómari syni sínum til Nancy í Frakklandi en þá hafði Fahad, eldri sonur hennar, þegar verið búsettur þar um tíma. Eftir tveggja ára dvöl í Nancy lá leiðin til Parísar þar sem Guðrún gerðist fréttaritari RÚV í París, en vann einnig við þýðingar á bókmenntaverkum úr frönsku og rússnesku.
Guðrún skrifaði tvær bækur: Til Heljar og heim, sem kom út hjá Máli og menningu árið 1994, og Milli landa – 5 íslenskar konur í París árið 1995 hjá Fróða hf. Hún þýddi margar skáldsögur og önnur rit, auk þess að vera pistlahöfundur fyrir blöð og tímarit hér heima. Á þessum árum bjó Guðrún víðsvegar um Frakkland, meðal annars í Arles í Suður-Frakklandi og í Auvergne-héraði.
Árið 2002 flutti Guðrún alfarið til Íslands og vann við kennslu í Varmalandsskóla í Borgarfirði þar til hún fór á eftirlaun. Barnabörn Guðrúnar eru sex: Börn Fahads eru Gael Corto, f. 1988, og Jakob Ketill, f. 2012. Barn Gael Cortos, langömmubarn Guðrúnar, er Þórkatla, f. 2011. Börn Ómars eru Amira Snærós, f. 2003, Mariam Jökla, f. 2012, Eliana Eldey, f. 2014, og Nil Máni, f. 2025.
Ritaskrá
- 1995 MIlli landa 5 íslenskar konur
- 1994 Til heljar og heim