SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir 9. ágúst 2026

APPELSÍNUGULUR HIMINN YFIR AUSTURBÆJARSKÓLA

Nýtt verk eftir Kristrúnu Guðmundsdóttur var að koma sjóðheitt úr prentsmiðjunni. Þetta er fyrsta barnabók hennar og nefnist hún Appelsínugulur himinn yfir Austurbæjarskóla. Myndskreytir er Kalli Youze. Kristrún hefur áður sent frá sér fjölda ljóðabóka, skáldsögur, matreiðslubók auk þýðinga. Árið 2000 hlaut Kristrún viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðahandrit sitt Fingurkoss.

Bókin er kynnt svo:

Katla Rún er 10 ára og lifir og hrærist í sögum sem hún semur með ömmu sinni Huggu. Skil á milli skáldskapar og veruleika verða stundum óljós þegar Katla Rún setur á sig hugsanahjálminn og ímyndunaraflið tekur völdin. Þá lokar hún sig inni í eigin höfði þar sem allt getur gerst. Sagan einkennist af heimspekilegri samræðu enda eru börn í eðli sínu heimspekingar. Heillandi heimur verður til í hugskotum og sögugerð Kötlu Rúnar. Hún fær ró og næði til að sökkva sér niður í bækur og sögur. Sagan fjallar um mikilvægi þess að bjóða börnum upp á næði og einbeitingu til sköpunar.