SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir17. september 2026

INGIBJÖRG BIRGISDÓTTIR ER KOMIN Í SKÁLDATALIÐ

Ingibjörg Birgisdóttir er alin upp við söng og ljóðalestur en lét heillast fyrir alvöru af ljóðum í Kennaraháskóla Íslands. Þar kynntist hún ljóðabókum Þórarins Eldjárns og skráði sig í ljóðaáfanga hjá Ragnari Inga Aðalsteinssyni. Í framhaldinu ákvað hún að semja ljóðabók fyrir börn.

Ingibjörg hefur sent frá sér fjórar ljóðabækur fyrir börn. Skýjamyndir kom út árið 2007 og var lokaverkefni Ingibjargar í Kennaraháskólanum. Bókina vann hún í samstarfi við argentíska teiknarann Nataliu Yacuzzi. Draumar (2024) kom út sautján árum síðar, síðan Dásamleg dýr (2025) og Litaævintýri Siggu og Dóra (2026). 

Hér fyrir neðan má lesa eitt af þeim stórskemmtilegu ljóðum sem birtust í Skýjamyndum:

 

Amma
 
Heilmikill hávaði' og læti,
hélt að nú fengi ég slag.
Glaumur með gleði og kæti,
galsinn já kann á því lag.
 
Viljið þið vera ögn þægar.
Var ykkur aldrei kennt það?
Ljósin min, leikið þið hægar.
Löngun í þögnina bað.
 
Þær skýrðu þrjóskar frá saman:
Þessu við getum ei breytt,
annars er alls ekkert gaman,
amma, þú veist ekki neitt.
 

 

Hér má nálgast ljóðabókina Skýjamyndir

Hér má lesa viðtal við Ingibjörgu um líf hennar og skáldskap